Fara í efni  

Fréttir

Bæjarstjórnarfundur 27. ágúst

1297. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 27. ágúst kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Lesa meira

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Skógarhverfis

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Skógarhverfis verður mánudaginn 26. ágúst frá kl. 12:00 til 17:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.
Lesa meira

Gulla dagmamma hættir eftir 40 ár

Guðlaug Aðalsteinsdóttir eða Gulla dagmamma eins og flestir þekkja hana lét af störfum í lok júní síðastliðinn eftir 40 ára starf sem dagmamma á Akranesi. Á þessum fjörtíu árum hefur Gulla verið með 390 börn í vistun, þá m.a. börn barna sem voru í vistun hjá Gullu.
Lesa meira

Vegleg gjöf gefin til leikskólanna á Akranesi til að stuðla að bættum málþroska barna

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur og formaður málnefndar um íslenskt táknmál færði skóla- og frístundasviði veglega gjöf til allra leikskóla á Akranesi sem hefur það að markmiði að stuðla að bættum málþroska barna. Um er að ræða námsefni undir heitinu Lærum og leikum með hljóðin ásamt aukaefni
Lesa meira

Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2019 - opnað fyrir umsóknir

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála. Hér er sótt um rafrænt í gegnum íbúagátt Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði.
Lesa meira

Heimasíða Akraneskaupstaðar fær nýtt útlit

Á síðustu mánuðum hefur farið fram uppfærsla á heimasíðu Akraneskaupstaðar sem lítur nú dagsins ljós. Við uppfærslu síðunnar var horft til að einfalda hana, gera aðgengilegri fyrir notendur og aðlaðandi fyrir augað.
Lesa meira

Óskilamunir í íþróttamannvirkjum

Hægt er að vitja óskilamuna í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar dagana 17. til 21. ágúst
Lesa meira

Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum árlegt viðhald 12. - 16. ágúst

Mánudaginn 12. ágúst til föstudagsins 16. ágúst fer fram árlegt viðhald íþróttamiðstöðva Akraneskaupstaðar.
Lesa meira

Stakkstæðin á breið endurgerð

Síðustu daga hefur rykið verið dustað af horfnum atvinnuháttum á Breiðinni. Starfsmenn garðyrkjudeildar bæjarins eru nú í óða önn við að endurgera hluta stakkstæðanna sem áður voru notuð til að breiða út saltfisk til þerris. Þetta er hluti af heildarhönnun arkitektarstofunnar Landslags við Breiðina
Lesa meira

Skagapassinn orðinn að veruleika

Að undanförnu hefur Akraneskaupstaður unnið að tilraunaverkefninu Skagapassinn í samstarfi við veitingaaðila í bæjarfélaginu. Passinn gengur út á það að fullorðnir einstaklingar geta keypt sér passa á aðeins 1.500 kr. og fá með passanum aðgang fyrir einn að Jaðarsbakkalaug, Akranesvita og Byggðasafninu í Görðum. Þess má geta að aðgangur er ókeypis fyrir einstaklinga undir 18 ára aldri að þessum þremur stöðum. Jafnframt gefur passinn handhafa 15% afslátt af mat á fimm veitingastöðum á Akranesi gegn framvísun hans.
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00