Fara í efni  

Byggingarfulltrúi

Á Akranesi er starfandi byggingarfulltrúi sem er yfirmaður byggingarmála á Akranesi. Hlutverk hans er að veita bæjarbúum, bæjarfulltrúum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um byggingarmál.

Helstu verkefni byggingarfulltrúa eru móttaka umsókna byggingar-, stöðu- og framkvæmdaleyfa, móttaka og skráning séruppdrátta, auk skráningar byggingarstjóra og iðnmeistara á byggingarframkvæmdir. Á skrifstofunni fer einnig fram framkvæmd áfangaúttekta, fokheldisúttekta, stöðuúttekta, öryggisúttekta og lokaúttekta auk skráninga í Þjóðskrá Íslands og staðfesting eignaskiptayfirlýsinga. Einnig eru þar gerðar umsagnir vegna rekstrarleyfa og að lokum er reynt af allra bestu getu að leiðbeina og veita upplýsingar um það sem tengist byggingarmálum.

Byggingarfulltrúi Akraneskaupstaðar er Karl Jóhann Haagensen. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00