Fara í efni  

Tjaldsvæðið á Akranesi

Velkomin á tjaldsvæðið á Akranesi.

Tjaldsvæðið er staðsett í Kalmansvík sem er falleg vík í útjaðri bæjarins. Þar er mjög falleg fjallasýn til norðurs þar sem Snæfellsjökull ber af.

Svæðið er vel búið með sturtum og þvottaaðstöðu. Rekstraraðilar leggja sig fram við að halda allri aðstöðu snyrtilegri og stilla verðlagningu í hóf.

Göngustígar liggja um svæðið til allra átta og fuglaáhugamenn geta komið auga á ýmsar tegundir bæði sjó- og landfugla.

Nánari upplýsingar um svæðið, kort, verðskrá og fleira má sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Tjalda.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu