Fara í efni  

Frístund

Í frístundastarfi gefast ótal tækifæri til að vinna með þætti sem efla og styrkja einstaklinginn sem félagsveru og virkan þjóðfélagsþegn. Í öllu starfi frístundastarfi er lögð megináhersla á að vinna með sjálfsmynd, umhyggju, félagsfærni og virkni og þátttöku. Í nútímaþjóðfélagi vega þessir þættir sífellt þyngra og einstaklingar sem hafa góð tök á þessum þáttum standa vel að vígi á fullorðinsárum.

Frítíminn skipar stóran sess í lífi barna og unglinga og í gegnum viðfangsefni í frítímanum gefst börnum og unglingum tækifæri til að spegla skoðanir sínar og viðhorf í jafningjahópi á sínum forsendum enda þátttaka valfrjáls. Það starf sem unnið er á vettvangi frítímans og inni í skólakerfinu styður hvort annað í átt til aukinnar færni. Með virkri þátttöku í frítímanum skapast annars konar tækifæri fyrir börn og unglinga til þjálfunar og í öðru samhengi og umhverfi.

Þorpið frístundamiðstöð

Vettvangur starfsemi Þorpsins er frítími og forvarnir og er megináherslan lögð á barna- og unglingastarf. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þorpið leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf þar sem lögð er áhersla á forvarnir. Í gegnum þetta starf er börnum og ungmennum beint inn á braut heilbrigðis og jákvæðs lífernis. Þorpið leggur metnað sinn í að veita faglega og umfangsmikla þjónustu og vinnur í nánu samstarfi við börn og ungmenni, foreldra og frjáls félagasamtök. Markmið Þorpsins er að vera opin fyrir nýjungum og breytingum í starfseminni á hverjum tíma. Mikilvægt er að mæta þörfum hvers og eins og miða starfsemina út frá þörfum samfélagsins hverju sinni.

Innan Þorpsins eru Arnardalur, félagsmiðstöð fyrir 5.-10.bekk, Hvíta húsið, ungmennahús fyrir 16 - 25 ára, Dagstarf fyrir 10-20 ára og Frístundarheimilið Krakkasel, safnfrístund fyrir 3. - 4. bekk.

Starfsmenn skrifstofu eru Ívar Orri Kristjánsson, forstöðumaður , Elísabet Sveinbjörnsdóttir, deildarstjóri Krakkadals og Linda Ósk Alfreðsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu

Starfsmenn Þorpsins taka mið af og vinna eftir siðareglum Félags fagfólks í frítímaþjónustu.

Farsælt frístundastarf - Verið velkomin

HVAÐ ER SKIPULAGT FRÍSTUNDASTARF?

Með skipulögðu frístundastarfi er átt við starf íþrótta- og tómstundafélaga þar sem börn og ungmenni stunda áhugamál sitt undir leiðsögn.
Börn og ungmenni sem taka þátt í skipulögðu frístundastarfi eru meðal annars:

    • Líklegri til þess að halda áfram að hreyfa sig eða stunda sitt áhugamál á
      fullorðinsárum
    • Líklegri til þess að njóta velgengni í námi
    • Líklegri til þess að eiga gott og stórt félagslegt stuðningsnet

Á Íslandi er rík hefð fyrir því að börn og ungmenni taki þátt í skipulögðu frístundastarfi. Dagleg hreyfing er börnum og ungmennum nauðsynleg fyrir
andlega, líkamlega og félagslega vellíðan. Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi getur ýtt undir þá tilfinningu að tilheyra og taka þátt og því getur slíkt starf
gegnt mikilvægu hlutverki í að virkja innflytjendur til þátttöku í samfélaginu.

Hér finnið þið kynningarbækling um frístundir fyrir börn á Akranesi á nokkrum tungumálum:

Verið velkomin - frístundir fyrir börn á Akranesi

WELCOME TO AKRANES Leisure activities for children

ЛАСКАВО ПРОСИМО ДО АКРАНЕСАД озвілля для дітей

BIENVENIDOS A AKRANES Actividades recreativas para niños

WITAMY W AKRANES Zajęcia rekreacyjne dla dzieci

ﻣﺮﺣﺒًﺎ ﺑﻜﻢ ﻓﻲ أﻛﺮاﻧﻴﺴﺎﻷﻧﺸﻄﺔ اﻟﺘﺮﻓﻴﻬﻴﺔ ﻟﻸﻃﻔﺎل

Tómstundaframlag 

Akraneskaupstaður styrkir frístundaiðkun allra barna og unglinga á aldrinum 5-17 ára sem hafa lögheimili á Akranesi. Tómstundaframlagið gildir fyrir þau börn sem verða 5 til 17 ára á árinu.

Við skráningu barna í gegnum Abler er hægt að ráðstafa tómstundaframlaginu og skipta því á milli íþróttafélaga, æfi viðkomandi fleiri en eina grein. Árið 2026 er tómstundaframlagið 40.200 krónur fyrir eitt barn, 45.200 krónur fyrir hvert barn þar sem tvö börn eru skráð með sama lögheimili og 51.000 krónur fyrir hvert barn þar sem þrjú eða fleiri börn eru skráð með sama lögheimili.

Fimm ára börnhálfan styrk og 6-17 ára fullan styrk. Með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan er hægt að sjá það frístundastarf sem er í boði á vegum Akraneskaupstaðar og ÍA.

Abler - Akraneskaupstaður Abler - ÍA

 

Upphæð tómstundaframlagsins hverju sinni er ákvörðun bæjarstjórnar. Framlaginu er einnig hægt að ráðstafa í Tónlistarskóla Akraness. Athugið að styrkurinn gildir ekki fyrir sumarnámskeið nema þau nái yfir 10 vikur.

Markmið þessarar niðurgreiðslu er að hvetja börn og unglinga til að finna sér frístund sem hentar hverjum og einum. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um reglur um tómstundaframlag.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu