Fara í efni  

Fjármála- og þjónustusvið

Fjármála- og þjónustusvið hefur að leiðarljósi að þróa og innleiða hjá Akraneskaupstað góð vinnubrögð í stjórnun fjármála, reikningshaldi, fjárhagsáætlunargerð, og hverskonar skrifstofuhaldi. Sviðið hefur að markmiði að veita viðskiptavinum sínum, þ.e. sviðum, stofnunum, fyrirtækjum og deildum Akraneskaupstaðar, bæjarfulltrúum og bæjarbúum, ávallt eins góða þjónustu og kostur er, með hagkvæmum hætti.

Fjármála- og þjónustusvið fer með ábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og launamálum Akraneskaupstaðar. Sviðið sinnir innra eftirliti, þ.m.t. eftirliti með framkvæmd fjárhagsáætlunar. Fjármála- og þjónustusvið annast greiningar um fjárhagsleg málefni og er í forystu fyrir umbótaverkefni á sviði rekstrar um bætta stjórnunarhætti, verklag og hagræðingu í rekstri kaupstaðarins. Fjármála- og þjónustusvið skal vera leiðandi varðandi þróun rafrænnar stjórnsýslu og greiðslumiðlunar. Áhersla er lögð á þjónustuhlutverk skrifstofunnar og skilvirka upplýsingamiðlun til viðskiptavina.

Þær deildir sem tilheyra fjármála- og þjónustusviði eru fjárreiðudeild, bókhaldsdeild og launadeild. Sviðsstjóri er Steinar Adolfsson sem veitir jafnframt nánari upplýsingar bæði í tölvupósti á netfangið steinara@akranes.is og í síma 433 1000.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu