Fara í efni  

Barnvænt sveitarfélag

  

Sumarið 2025 hlaut Akraneskaupstaður formlega viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag.

Viðurkenningin er staðfesting á því að Akraneskaupstaður leggur metnað í að skapa samfélag þar sem börn njóta virðingar, öryggis og hafa tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf og umhverfi. Hún markaði mikilvægan áfanga í þeirri vegferð bæjarins að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins.

Til að hljóta þessa viðurkenningu vann bærinn að umfangsmikilli aðgerðaáætlun sem felur í sér 17 aðgerðir til að styrkja stöðu barna í samfélaginu. Þessar aðgerðir snúa meðal annars að aukinni fræðslu um réttindi barna, bættri þjónustu og aukinni þátttöku barna í ákvörðunum sem varða þau. Hægt er að lesa um aðgerðirnar í lokaskýrslu kaupstaðarins um innleiðinguna.

Ungmennaráð Akraness tók virkan þátt í verkefninu og skilaði skýrslu sem innihélt meðal annars myndbandið hér fyrir neðan.

Barnvæn sveitarfélög er verkfærakista og líkan sem styður við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, sem hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga út um allan heim frá 1996.

 

Barnvæn sveitarfélög eiga markvisst samráð við börn og ungmenni og nýta raddir þeirra til að bæta þjónustu sveitarfélagsins.

         

Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna

Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn heimsins þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. Hann staðfestir að börn eru sjálfstæðir einstaklingar með fullgild réttindi óháð réttindum fullorðinna. Öllum þeim sem koma að málefnum barna ber að gera það sem í þeirra valdi stendur til að framfylgja samningnum. Hér er átt við stjórnvöld, foreldra, skóla og alla aðra sem vinna með börnum eða fyrir börn.

Hér getið þið lesið meira um barnasáttmálann.

 

Barnvæn sveitarfélög

Barnvæn sveitarfélög (e. Child Friendly Cities) eru bæir, borgir eða samfélög sem stýrt er af sveitar- eða bæjarstjórn þar sem markmiðið er að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda barna s.s. við gerð stefnu, verkefna eða við aðra ákvarðanatöku. Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities (CFC) en það hefur verið innleitt í fjölda sveitarfélaga víðsvegar um heim.

Innleiðingarferli Barnasáttmálans í sveitarfélagi er unnið í átta skrefum sem miða að því að virða og uppfylla réttindi barna og tekur ferlið að minnsta kosti tvö ár. Sjá nánar hér á vef um Barnvæn sveitarfélög.

Innleiðing verkefnisins á Akranesi

Þann 14. maí 2020 undirrituðu Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir f.h. UNICEF á Íslandi og Sævar Freyr
Þráinsson þ.v. bæjarstjóri Akraneskaupstaðar samstarfssamning um verkefnið Barnvænt sveitarfélag. Fram kom að verkefnið fælist í því að Akraneskaupstaður innleiddi Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins samkvæmt hugmyndafræði Barnvænna sveitarfélaga, sem er liður í framkvæmd verkefnisins Barnvænt Ísland. Upphaflega var gert ráð fyrir að tveggja ára innleiðingarferli sáttmálans yrði frá mars 2020-2022. En ferlið hófst ekki fyrr en með ráðningu verkefnastjóra Barnvæns sveitarfélags sem hóf störf hjá Akraneskaupstað 1.október 2021.

Þann 20. maí 2021 var skipaður og samþykktur stýrihópur um barnvænt sveitarfélag hjá Akraneskaupstað og fyrsti fundur haldinn þann 29. nóvember
2021. Þá hófst stöðumat og leiðbeinandi spurningalistar og spurningkannanir voru kynntar fyrir stýrihópnum og svarað sameiginlega á fundum stýrihópsins. Í upphafi gekk erfiðlega að virkja fólk til þátttöku og ná saman fundum stýrihóps en settir voru fastir fundatímar og gekk það þá betur. Við sveitarstjórnar kosningar í maí 2022 breyttist skipan stýrihópsins þar sem nýir pólitískir fulltrúar tóku sæti í stýrihópnum. Við þessar breytingar varð enn meiri kraftur settur í verkefnið og aukin samstað í stýrihópnum, fastir fundatímar voru settir á fundi stýrihópsins. Á því tímabili sem stöðumat fór fram, frá nóvember 2021-mars 2023 voru 10 fundir í stýrihóp. Fulltrúar ungmennaráðs voru með á flestum fundum og var alltaf boðið seta á fundum. Heilt á litið gekk stöðumatið mjög vel og var mikill áhugi og velvilji á öllum sviðum og stofnunum Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður lauk fjórða skrefi innleiðingarferlisins með gerð Aðgerðaáætlunar sem samþykkt var í Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar þann 10. desember 2024. Teknar voru saman 17 aðgerðir sem mynda aðgerðaáætlun Akraneskaupstaðar vegna innleiðingar Barnasáttmálans. Allar aðgerðirnar voru samþykktar og settar í framkvæmd.

Þann 2. júní 2025 hlaut Akraneskaupstaður svo formlega viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag.

Aðgerðaáætlun Akraneskaupstaðar

Aðgerðaáætlunin byggði á niðurstöðum kortlagningar á velferð og réttindum barna á Akranesi. 

Hér má lesa: Aðgerðaáætlun Akraneskaupstaðar vegna innleiðingu barnasáttmálans 2023-2025

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu