Fara í efni  

Félagsþjónusta

Akranes er fjölskyldusamfélag þar sem stuðlað er að heilbrigðu líferni íbúa með góðri lýðheilsu og velferð. Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar sinnir því hlutverki að veita íbúum sveitarfélagsins þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Aðstoð og þjónusta skal vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Akraneskaupstaður veitir íbúum fjölbreytta þjónustu á ýmsum sviðum um flesta þá þætti er lúta að daglegu lífi fólksins í bænum. Hér má nálgast upplýsingar um ýmislegt er snýr að þjónustu við fullorðna, s.s. félagslega aðstoð og félagslega ráðgjöf. 

Nánari upplýsingar veitir Hrefna Rún Ákadóttir félagsráðgjafi bæði í síma 433 1000 og í tölvupósti á netfangið hrefna.run.akadottir@akranes.is

Símatími félagsráðgjafa er á mánudögum milli kl: 11:00 og 12:00

Fjárhagsaðstoð

Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Félagsþjónusta Akraneskaupstaðar veitir fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi. Fjárhagsaðstoð er veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsþjónustu.

Réttur til fjárhagsaðstoðar

Einstaklingar með lögheimili á Akranesi sem hafa tekjur á eða undir viðmiðunarmörkum geta sótt um fjárhagsaðstoð. Tekjumörk eru miðuð við upphæð fjárhagsaðstoðar. Fólk sem er í skráðri sambúð í Þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón.

Umsækjanda ber að kanna til þrautar rétt til annarra greiðslna áður en sótt er um fjárhagsaðstoð, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, LÍN, fæðingarorlofssjóði, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Umsækjandi þarf að tilkynna um breytingar á tekjum og fjölskylduaðstæðum en slíkar breytingar geta haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð sem er veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er endurkræf. Heimildir eru til styrkja eða láns vegna sérstakra aðstæðna.

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Sveitarfélagi er skylt að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð fyrir sér og sínum án aðstoðar.

Umsókn um fjárhagsaðstoð skal sækja um stafrænt í gegnum island.is. Mikilvægt er að skila gögnum sem staðfesta virka atvinnuleit frá vinnumálastofnun eða læknisvottorði sé viðkomandi óvinnufær.

Upphæð fjárhagsaðstoðar

Fjárhagsaðstoð til einstaklinga 18 ára og eldri getur numið allt að kr. 201.159.- á mánuði.

Fjárhagsaðstoð til hjóna og fólks í skráðri sambúð getur numið allt að kr. 322.579.- á mánuði (kr. 201.612*1,6)

Fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu.Fjárhagsaðstoð getur kr. 134.408 (2/3 af grunnfjárhæð) ef umsækjandi er húsnæðislaus.

Fjárhagsaðstoð getur numið kr. 100.806 (1/2 af grunnfjárhæð) ef umsækjandi býr hjá foreldrum eða öðrum ættingjum/aðstandendum.

Samþykkt fjárhagsaðstoð er greidd út 1. hvers mánaðar eða fyrsta virka dag ef 1. lendir á laugardegi eða sunnudegi og skal það tekið fram að fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins er skattskyld.

Skerðing fjárhagsaðstoðar

Hafi umsækjandi um fjárhagsaðstoð hafnað atvinnu eða sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, er heimilt að greiða honum hálfa grunnupphæð til framfærslu þann mánuð sem umsækjandi hafnar vinnu og mánuðinn þar á eftir. Sama á við um atvinnulausan umsækjanda sem ekki sýnir fram á staðfesta skráningu sína frá Vinnumálastofnun. Þá skerðist með sama hætti réttur umsækjanda sem hætt hefur þátttöku í átaksverkefni, endurhæfingu og einstaklingsmiðaðri áætlun hjá ráðgjafa, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því. 

Þjónustuferill

Umsækjendur þurfa að tilkynna sig á milli 20. – 25. hvers mánaðar með viðtali, tölvupósti eða símtali. Umsækjendur eru boðaðir í viðtal til félagsráðgjafa á þriggja mánaða fresti, þar sem farið er yfir réttindi, skyldur, virkni og úrræði. Gerður er virknisamningur og áætlun. 

Nánari upplýsingar veitir Hrefna Rún Ákadóttir félagsráðgjafi bæði í tölvupósti á netfangið hrefna.run.akadottir@akranes.is og í síma 433 1000.

Félagsleg ráðgjöf

Starfsfólk félagsþjónustu Akraneskaupstaðar veitir félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna í sveitarfélaginu. Félagsleg ráðgjöf getur staðið ein eða verið í tengslum við önnur úrræði félagsþjónustu.

Markmið þjónustunnar er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Unnið er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 (skoða lögin í heild sinn hér).

Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar á sviði fjármála, húsnæðismála, uppeldismála, skilnaðarmála, þar með talinna forsjár- og umgengnismála, ættleiðingarmála o.fl. Henni skal ætíð beitt í eðlilegu samhengi við aðra aðstoð og í samvinnu við aðra aðila sem bjóða upp á slíka þjónustu, svo sem skóla, sýslumenn og heilsugæslustöðvar, eftir því sem við á.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00