Fara í efni  

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Skógarhverfis

Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Skógarhverfis verður mánudaginn 26. ágúst frá kl. 12:00 til 17:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.

 

Breyting á Aðalskipulagi Skógarhverfis 

Breytingin felst í að landnotkunarreitur Íb13 stækkar til norðurs, skógræktarsvæði O9 minnkar, íþróttasvæði O12 er fellt út. Tjaldsvæði við Garðalund er breytt í opið svæði, stofnanareitur S16 er stækkaður. Gert er ráð fyrir tengingu við þjóðveg norðan Skógarhverfis.

Hér má nálgast kynningargögn fyrir breytingu á Aðalskipulagi Skógarhverfis 

Breyting á deiliskipulagi Skógarhverfi 2. áfangi

Breytingin felst í að norðurhluti deiliskipulags 2. áfanga frá 2007 er felldur úr gildi.

Hér má nálgast kynningargögn fyrir breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 2.áfanga 

Deiliskipulag Skógarhverfi áfangi 3A 

Nýtt deiliskipulag fyrir einbýlishús og raðhús.

Hér má nálgast uppdrátt vegna breytinga á Skógarhverfi 3. áfanga

Hér má nálgast skýringaruppdrátt vegna breytinga á Skógarhverfi 3. áfanga

Deiliskipulag Skógarhverfi áfangi 3B 

Nýtt deiliskipulag fyrir stofnanalóð, gert er ráð fyrir leikskóla, grunnskóla og íþróttahúsi.

Hér má nálgast uppdrátt fyrir Skógarhverfi fyrir Skógarhverfi áfanga 3B

Skógarhverfi 4. áfangi   

Nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fjölbýlishúsum, meginhluti húsanna verða tveggja hæða án bílakjallara og einu fimm hæða fjölbýlishúsi.

Hér má nálgast kynningargögn fyrir breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 4.áfanga

Breyting á Deiliskipulagi Garðalundar 

Breyting á skipulagsmörkum

Hér má nálgast kynningargögn fyrir breytingu á deiliskipulagi Garðalundar

 

Eftir kynningu (opið hús) á ofangreindum skipulagsgögnum verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00