Fara í efni  

Rafrænir reikningar

Frá og með 1. júlí 2026 tekur Akraneskaupstaður eingöngu við reikningum vegna kaupa á vörum og þjónustu með rafrænum hætti.

Alla reikninga til Akraneskaupstaðar og tengdra félaga, það er Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. og Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis, skal senda rafrænt í gegnum skeytamiðlara. Mælt er með að sölureikningar séu gefnir út í sölukerfi sem styður rafræna sendingu reikninga.

Ef bókhalds- eða sölukerfi seljanda er ekki tengt skeytamiðlara er hægt að skrá reikning handvirkt í gegnum vef Akraneskaupstaðar með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Senda rafrænan reikning

Innihald reikninga

Reikninga skal stíla á rétta kennitölu og stofnun.

Eftirtaldar kennitölur eru gildar:

  • Akraneskaupstaður, kt. 410169-4449
  • Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf., kt. 630905-1330
  • Höfði hjúkrunar- og dvlarheimili, kt. 500576-0229

Á reikningi skal koma fram sundurliðun á vöru og/eða þjónustu, magn, eining, einingarverð og aðrar lögbundnar upplýsingar.

Einnig þarf, eftir því sem við á, að tilgreina eftirfarandi viðbótarupplýsingar:

  • númer og nafn deildar
  • verknúmer vegna framkvæmda
  • nafn og kennitölu þess sem pantar

Óskað er eftir að viðbótargögn, svo sem beiðnir, tíma- og verkskýrslur og önnur mikilvæg fylgigögn, séu send sem PDF-viðhengi með rafrænum reikningum. Með því vistast fylgigögn með viðkomandi reikningi.

Akraneskaupstaður og tengd félög bera ekki ábyrgð á ólögmætum vöruúttektum. Seljendum er ráðlagt að láta ávallt kvitta fyrir vörumóttöku með greinilegri undirskrift starfsmanns sveitarfélagsins og deildarnúmeri.

 

Gott að hafa í huga

-Rafræna reikninga skal senda samdægurs.

-Akraneskaupstaður áskilur sér 20 daga greiðslufrest frá móttökudegi reiknings, nema um annað hafi sérstaklega verið samið.

-Ef reikningur er ekki sendur á réttan stað eða inniheldur ekki nægar upplýsingar til að staðfesta réttmæti hans, gildir fyrirheit um greiðslufrest ekki.

-Allir reikningar eru sendir í rafræna uppáskrift og þurfa samþykki starfsmanns áður en þeir eru greiddir.

-Reikninga skal ekki senda á pappír eða sem PDF-skjal í tölvupósti samhliða rafrænum reikningum.

Fyrirspurnir og ábendingar

Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um rafræna reikninga má hafa samband við bókhaldsdeild Akraneskaupstaðar í netfanginu bokhald@akranes.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu