Bæjarstjórn
Bæjarstjórn fer með stjórn Akraneskaupstaðar og hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur, ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins. Bæjarstjórn fundar tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar í fundarsal bæjarstjórnar kl 17.00. Fundir bæjarstjórnar eru opnir en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Bæjarstjórnarfundir eru opnir almenningi en einnig er hægt að hlusta á þá í útvarpinu á tíðninni FM 95,0.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum sem kjörnir eru í lýðræðislegri kosningu af íbúum Akraness. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn og frjálsir hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Akraness fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Eftirtaldir aðilar skipa í dag bæjarstjórn Akraness
Aðalfulltrúar |
Varafulltrúar |
|
Líf Lárusdóttir (D) |
Viktor Elvar Viktorsson (D) |
|
Ragnar Baldvin Sæmundsson (B) forseti bæjarstjórnar |
Sædís Alexía Sigurmundsdóttir (B) |
|
Kristinn Hallur Sveinsson (S) |
|
|
Bjarnheiður Hallsdóttir (D) fyrsti varaforseti bæjarstjórnar |
Ragnheiður Helgadóttir (D) |
|
Karl Jóhann Haagensen (B) |
|
|
Emil Kristmann Sævarsson (D) |
|
|
Anna Sólveig Smáradóttir (S) |
|
|
Jón Guðni Guðmundsson (C) annar varaforseti bæjarstjórnar |
Helga Björg Þrastardóttir (C) |
|
Guðríður Þorbjörnsdóttir (M) |





