Fara í efni  

Forvarnir

Meginverkefni forvarnarstarfs bæjarins er að stuðla að víðtækum forvörnum fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs. Unnið er í samstarfi við alla þá sem koma að málefnum barna og unglinga í bæjarfélaginu. Forvarnir geta verið margháttaðar og beinst að bæði einstaklingum og ólíkum hópum samfélagsins. Það er þó sameiginlegt fyrir forvarnir að þeim er ávallt ætlað að koma í veg fyrir að mál nái að þróast á neikvæðan hátt hjá einstaklingi eða í samfélaginu í heild. Forvörnum er einnig ætlað að draga úr vandamálum sem eru til staðar eða hið minnsta koma í veg fyrir að þau aukist á einn eða annan hátt.

Akraneskaupstaður hefur samþykkt Velferðarstefnu og til að ná fram þeim markmiðum sem þar eru sett fram fylgir ítarleg aðgerðaráætlun. Meginmarkmið Velferðastefnu Akraneskaupstaðar er að vera leiðarljós fyrir stofnanir og félagasamtök á Akranesi þannig að forvarnarstarf nái til sem flestra þátta sem geta haft áhrif á heilbrigt líferni íbúanna og stuðla þannig að góðri lýðheilsu og velferð.

Saman hópurinn

Akraneskaupstaður á aðild að Saman hópnum sem er samstarfsvettvangur ýmissa stofnana á vegum ríkis og bæjarfélaga og frjálsra félagasamtaka á sviði forvarna. Hópurinn setti sér það markmið að auka samstarf fólks sem vinnur að forvörnum. Þeir sem standa að hópnum eiga það sammerkt að vinna á einhvern hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferð og ráðgjöf.

Forstöðumaður Þorpsins er fulltrúi Akraneskaupstaðar í Saman hópnum.

Heimasíða Saman hópsins

Facebooksíða Saman hópsins

Brúin 

Brúin er formlegur samráðs- og og samstarfsvettvangur starfsmanna og stofnana sem koma að ýmsum málum sem tengjast unglingum í sveitarfélaginu. Hópurinn fundar einu sinni í mánuði og setur sér starfsreglur sem byggjast á eftirfarandi nálgun að viðfangsefninu;

    • Fylgjast almennt með málum tengdum unglingum á Akranesi, safna upplýsingum, veita stuðning og samræma aðgerðir.
    • Fylgjast með hópmyndun meðal unglinga og nálgast þá áður en til vandamála og alvarlegra árekstra við umhverfið kemur.
    • Fylgjast með og þróa nýjungar varðandi úrræði í unglingamálum.
    • Koma hugmyndum á framfæri við viðkomandi stofnanir og félagasamtök.

Brúin verður þannig skipuð:

Verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnarmála, formaður

Fulltrúi fjölskyldusviðs, tilnefndur af sviðsstjóra

Fulltrúi lögreglunnar, tilnefndur af sýslumanni

Fulltrúi Brekkubæjarskóla, tilnefndur af skólastjóra

Fulltrúi Grundaskóla, tilnefndur af skólastjóra

Fulltrúi Arnardals og Hvíta hússins tilnefndur af verkefnisstjóra.

Auk þess sitja hjúkrunarfræðingar skólaheilsugæslu og forvarnafulltrúi FVA

Forvarnaáætlun Akraneskaupstaðar (Í vinnslu)

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu