Fara í efni  

Mennta- og menningarráð

Mennta- og menningarráð er bæjarráði og bæjarstjórn til ráðgjafar í þeim málaflokkum sem tilheyra mennta- og menningarsviði, m.a. málefnum leik-, grunn- og tónlistarskóla Akraneskaupstaðar, forvarnamálum, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamálum, daggæslu barna og vinnuskóla. Ráðið gerir tillögur til bæjarráðs um stefnu og markmið í framangreindum málaflokkum og hefur eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar og bæjarráðs í þessum málaflokkum nái fram að ganga.

Mennta- og menningarráð heldur fundi sína að jafnaði fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði. Sviðsstjóri mennta- og menningarráðs situr fundi ráðsins með málfrelsis- og tillögurétt. Mennta- og menningarráð gerir tillögur til bæjarráðs um afgreiðslu þeirra málaflokka sem heyra undir ráðið. Undir mennta- og menningarráð heyrir bæjarstjórn unga fólksins.

Mennta- og menningarráð er skipað eftirtöldum aðilum:

Aðalmenn
Varamenn

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D) varaformaður

Erla Karlsdóttir (D)

Liv Aase Skarstad (B) formaður

Áslaug Guðmundsdóttir (B)

Helga Björg Þrastardóttir (C)

Guðný Sara Birgisdóttir (C)

 

Áheyrnarfulltrúar
Varaáheyrnarfulltrúar

Kristinn Hallur Sveinsson (S)

Katrín Valdís Hjartardóttir (S)

Finney Aníta Thelmudóttir (M)

Ólafur Rúnar Sigurðsson (M)

   
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu