Opið bókhald
Hér fyrir neðan má sjá opið bókhald bæjarins, en tilgangur þess er fyrst og fremst að auka aðgengi íbúa að fjárhagsupplýsingum.
Bókhaldinu er skipt í tekju- og gjaldagreiningu og áhersla lögð á skýra framsetningu í notendavænu viðmóti. Kerfið er gagnvirkt og hægt er að velja hvern málaflokk, þjónustuþátt, tekju- eða gjaldalið og skoða hvernig skiptingin er.
Opið bókhald er sótt með beinum hætti í bókhald Akraneskaupstaðar. Gögn eru birt fyrir hvern ársfjórðung. Allar tölur eru birtar með fyrirvara um kerfisvillur.
Við mælum með því að ýta á hnappana þar sem boðið er upp á að skoða bókhaldið í nýjum glugga.
Gjöld - málaflokkar, þjónustuþættir og gjaldaliðir
Hér má sjá skiptingu gjalda niður á málaflokka, deildir og gjaldaliði. Hægt er að skoða gögn þrjú ár aftur í tímann og gera samanburð milli tímabila.
Tekjur - málaflokkar, þjónustuþættir og tekjuliðir
Hér má sjá skiptingu tekna niður á málaflokka, deildir og tekjuliði. Hægt er að skoða gögn þrjú ár aftur í tímann og gera samanburð milli tímabila.





