Fara í efni  

Fréttir

HB Grandi - yfirlýsing Akraneskaupstaðar

Undanfarnar vikur hafa sem kunnugt er staðið yfir viðræður við forsvarsmenn HB Granda vegna ákvörðunar þeirra um að hætta botnfiskvinnslu á Akranesi. Viðræðurnar hafa verið gagnlegar og upplýsandi. Mikil vonbrigði eru þó að botnfiskvinnsla hætti hjá HB Granda á Akranesi og að starfsfólk fái uppsagnarbréf. Um leið er ljóst að mikil tækifæri eru fólgin í áframhaldandi viðræðum við HB Granda sem skýrast munu á næstu vikum og mánuðum.
Lesa meira

Tímabundin lokun sundlaugar

Vikuna 15. til 19. maí næstkomandi verður sundlaugin að Jaðarsbökkum lokuð vegna framkvæmda. Brjóta þarf upp stéttina fyrir framan búningsklefana og leggja nýja affalls- og snjóbræðslulögn. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Lesa meira

70 ára afmæli Dreyra

Félagar í Hestamannafélaginu Dreyra munu sýna sig og sjá aðra á Skaganum laugardaginn 6. maí næstkomandi með því að fara í miðbæjarreið niður að Akratorgi. Tilgangurinn með bæjartúrnum er 70 ára afmæli félagsins sem var þann 1. maí síðastliðinn og að minna á hestamennsku sem er stunduð í jaðri bæjarfélagsins.
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 9. maí

1254. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. maí kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira

Rekstrarafkoma bæjarsjóðs betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og skuldahlutfall fer lækkandi

Ársreikningur Akraneskaupstaðar var lagður fram í bæjarráði fimmtudaginn 19. apríl sl. og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness sem fór fram þann 25. apríl síðastliðinn.
Lesa meira

Vorhreinsun framundan á Akranesi

Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana fer fram dagana 29. apríl - 7. maí. Bæjarbúar, ungir sem aldnir eru hvattir til að fagna vori og taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu allra bæjarbúa. Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum á tímabilinu og geta íbúar og fyrirtæki skilað þar endurgjaldslaust því sem til fellur við vorhreinsunina.
Lesa meira

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Samkvæmt tilkynningu frá Speli verða Hvalfjarðargöng lokuð fjórar nætur í þessari viku (17. viku ársins). Vakin er sérstök athygli á að lokað verður kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl en á miðnætti næstu þrjú kvöld þar á eftir. Næturlokun ganganna á þessum tíma árs er hefðbundinn vor- og sumarboði, tími sem...
Lesa meira

Hjónavígsla í Akranesvita

Fyrsta hjónavígslan í Akranesvita fór fram þann 18. apríl síðastliðinn. Það voru þau Tanja og Markus frá Þýskalandi sem létu gefa sig saman í fjörunni hjá Vitanum og sá Sýslumaðurinn á Vesturlandi um vígsluna..
Lesa meira

Bæjarstjórnarfundur 25. apríl

1253. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 25. apríl kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira

Óskað er eftir tillögum um bæjarlistamann Akraness árið 2017

Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2017. Hér má sjá hverjir hafa verið kjörnir bæjarlistamenn Akraness í gegnum árin.
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00