Fara í efni  

Deiliskipulagi lokið - breyting á deiliskipulagi Stofnanareits Heiðarbraut 40

Langisandur á Akranesi
Langisandur á Akranesi

Uppfært 3. september 2015Deiliskipulag Stofnanareits Heiðarbraut 40 er lokið með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 17. mars 2015. Samþykkt deiliskipulag má skoða hér. 


Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 24. febrúar 2015, breytingu á deiliskipulagi Stofnanareits vegna Heiðarbrautar 40. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn bæjarstjórnar.

Sú breyting var gerð frá auglýstri tillögu að hámarksfjöldi íbúða er fækkað úr 26 í 18. Bílastæðum er fjölgað úr 17 í 20. Byggingarreitur vestan við núverandi hús er felldur niður. Byggingarreitur austan við núverandi hús verður tvær hæðir í stað þriggja.

Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda.

Deiliskipulag reitsins má sjá hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00