Ellefu daga menningarveislu lokið
Vökudögum lauk á sunnudag. Þessi glæsilega menningarhátíð Akraness stóð yfir í ellefu daga og á þeim tíma voru tugir menningarviðburða af öllu tagi haldnir víða um bæinn. Bæjarbúar tóku virkan þátt auk þess sem fjölmargir sóttu Akranes heim meðan á hátíðinni stóð. Fjölmiðlar sýndu hátíðinni mikinn áhuga og bein útsending var frá setningardegi hennar í fréttatíma RÚV.
Mögulega er einsdæmi að tvær tónlistarhátíðir fari fram í bæjarfélagi á borð við Akranes sömu helgina, en Ægisbraut Records stóð fyrir Lilló Hardcore Fest um helgina meðan Ólafur Páll Gunnarsson fékk hina ýmsu bæjarbúa til að opna heimili sín, verslanir og fyrirtæki fyrir tónlistarhátíðina HEIMA-SKAGA sem var stærri en nokkru sinni og hlaut menningarverðlaun kaupstaðarins í ár. Báðar hátíðirnar fóru afar vel fram og eru sannarlega skrautfjöður í hatt Akurnesinga. Hér má til að mynda lesa umsögn Arnars Eggerts Thoroddsen um Lilló, en Arnar hefur löngum verið einn helsti og virtasti tónlistargagnrýnandi landsins.

Hið árlega bókmenntakvöld fór fram á bókasafninu þar sem sex rithöfundar lásu upp úr verkum sínum og Sigurbjörg Þrastardóttir stjórnaði af miklum myndarbrag. Kvöldið var afar vel sótt og hefur sannarlega fest sig í sessi sem einn af hápunktum hátíðarinnar.
Kvikmyndasafn Íslands bauð til sýningarinnar ,,Skaginn á filmu" í Tónbergi. Þar voru dregnar fram sjaldséðar perlur úr safnkosti Kvikmyndasafnsins: myndbrot frá fyrsta leik ÍA þar sem spilað var í spariskyrtum, fyrsta opinbera forsetaheimsókn Sveins Björnssonar á Akranes og dásamlegar svipmyndir úr bænum. Með því að smella hér má sjá mikið af skemmtilegu myndefni, en þarna er meðal annars hægt að velja Vesturland og finna sex myndskeið frá Akranesi.

Yngri kynslóðin fékk sannarlega einnig að njóta hátíðarinnar, til að mynda á HEIMA-SKAGA unga fólksins, í ótal smiðjum, tónleikum, dansi og þannig mætti áfram telja auk þess sem nemendur á öllum skólastigum héldu sýningar á verkum sínum.
Þrír veglegir og fjölbreyttir markaðir voru hluti af hátíðinni, til að mynda matarmarkaður á Breið þar sem yfir 1.000 gestir mættu til að smakka og kaupa afurðir frumkvöðla í matvælaframleiðslu á Vesturlandi, bláskel, hunang, kjöt, harðfiskur, geitaostur og granóla svo örfátt sé nefnt.
Þetta var í 25. sinn sem Vökudagar eru haldnir, en hátíðin hefur vaxið og dafnað með hverju árinu. Viðburðirnir sem nefndir eru hér fyrir ofan eru til marks um það, en í upptalningunni er aðeins stiklað á stóru. Til þess að hátíð sem þessi geti orðið að veruleika þarf samhent átak og ótal handtök. Þau Vera Líndal verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað og Hjörvar Gunnarsson viðburðastjóri Akraneskaupstaðar og kennari í Brekkubæjarskóla héldu um stjórntaumana í ár, en meðal nýjunga var opnun glæsilegrar heimasíðu þar sem gestir gátu meðal annars sérsniðið sína eigin dagskrá. Starfsfólk mennta- og menningarstofnana tóku virkan þátt og listamenn bæjarins létu sannarlega ekki sitt eftir liggja.
Takk fyrir samveruna, samtölin, menninguna, listina, gleðina og kraftinn!
Sjáumst á Vökudögum að ári 💙

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





