Aldrei fleiri komið fram á HEIMA-SKAGA
“Ég ákvað á G! Festival í Færeyjum fyrir nokkrum árum að ég ætlaði alltaf að reyna að fá einhvern frá Færeyjum til að spila á HEIMA-SKAGA,” segir Ólafur Páll Gunnarsson skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar HEIMA-SKAGA sem fram fer á morgun, en hátíðin hlaut menningarverðlaun Akraneskaupstaðar á dögunum.
Hátíðin var fyrst haldin á Akranesi árið 2019, en Óli Palli hafði áður staðið ásamt öðrum fyrir slíkri hátíð í Hafnarfirði frá árinu 2014. Tengingin við Færeyjar er sú að fyrirmyndin er þaðan, tónlistarhátíðin HOYMA í Gøtu. “Í fyrra kom Guðrið Hansdóttir frá Færeyjum og í ár er það Marius Ziska. Það hefur staðið til í nokkur ár að hann kæmi og loksins gekk það upp í ár. Hann er frábær músíkant, nokkurs konar Ásgeir Trausti þeirra Færeyinga,” segir Óli.
Meðal annarra listamanna og hljómsveita sem fram koma eru SúEllen, Á Móti Sól, Dóra og döðlurnar, Kristmundur Axel, Jónas Sig og þannig mætti lengi áfram telja.

Það er gaman að segja frá því að nú stefnir í að aldrei hafi verið jafn margir á HEIMA-SKAGA. “Mér reiknast svo til að á milli 80 og 90 manns stígi á svið. Það eru sautján atriði og hljómsveitir sem koma fram. Stærst er lúðrasveitin, gamla skólahljómsveit Akraness, sem telur um 30-40 manns.” Óli segir að í ár búi hann einnig við þann lúxus að þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af plássi. “KAPP er helsti stuðningsaðili hátíðarinnar í ár og leggur meðal annars til húsnæði sitt. Ég reikna með að bara þar komist fyrir rúmlega allir gestir hátíðarinnar ef ég miða við miðasölu í ár og undanfarin ár.
Verslanir á Akranesi taka einnig virkan þátt í hátíðinni í fyrsta sinn. “Það verða tónleikar í Nínu, Garnikó og Galleríi Bjarna Þórs. Ég er mjög ánægður með það. Þetta verður nánast óbrotin lína tónleikastaða frá gamla Arnardal að Haraldarhúsi og niður í KAPP.”

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





