Fara í efni  

Fréttir

Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi þann 9. mars 2021 að veita framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Skógarhverfi áfanga 3A og auglýsir hér með útgáfu leyfisins. Framkvæmdaleyfið er gefið út skv. 10. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Lesa meira

Útboð á leikskóla að Asparskógum 25

Verkís hf., fyrir hönd Fasteignafélag Akranes, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við uppsteypu og utanhúsfrágang við nýjan leikskóla að Asparskógum 25, Akranesi. Verkið nær til uppsteypu hússins, ásamt lagnavinnu við þá þætti sem tengjast uppsteypu. Verktaki skal koma fyrir gluggum og hurðum, ganga frá þakvirki, þakfrágangi og utanhússklæðningu.
Lesa meira

Teymi dregin til þátttöku í hugmyndasamkeppni um Langasandssvæðið

Apríl Arkitekter, Kanon Arkitektar og Landmótun sf. ásamt Sei Stúdíó eru þau þrjú teymi sem taka þátt í hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi. Útdráttur fór fram þriðjudaginn 2. mars síðastliðinn í viðurvist votta. Alls voru fjórtán fagteymi sem sóttust eftir að taka þátt en eitt dró sig tilbaka áður en útdráttur fór fram.
Lesa meira

Aðgerðaráætlun vegna loftgæða í Grundaskóla

Aðgerðaráætlun vegna loftgæða í Grundaskóla
Lesa meira

Innritun í leikskóla haustið 2021

Innritun í leikskóla haustið 2021 hefur farið fram.
Lesa meira

Laust starf ritara í Brekkubæjarskóla

Laust starf ritara í Brekkubæjarskóla. Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 460 talsins, en starfsmenn um 100.
Lesa meira

Samráðsfundur um stöðu samgöngumála á Vesturlandi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða upp á rafrænan samráðsfund um stöðu samgöngumála á Vesturlandi, miðvikudaginn 3. mars frá kl. 15-17.
Lesa meira

Bæjarstjóri færði áhöfninni á Venus NS 150 rjómatertu

Í dag, þriðjudaginn 2. mars, landaði Venus NS 150 um það bil 530 tonnum af loðnu. Var þetta fyrsta loðnulöndun ársins á Akranesi og af því tilefni færði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri áhöfninni rjómatertu. Bergur Einarsson skipstjóri veitti rjómatertunni viðtöku fyrir hönd áhafnarinnar. 
Lesa meira

Laust starf þroskaþjálfa á sviði frístunda

Frístundamiðstöðin Þorpið óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling til að starfa í fjölbreyttu, krefjandi og skemmtilegu frístundastarfi með börnum og ungmennum. Um er að ræða 75% stöðu og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri ungmennastarfs í Þorpinu.
Lesa meira

Innritun í grunnskóla

Bréf vegna innritunar 6 ára barna í grunnskóla hafa nú verið birt í þjónustugátt Akraneskaupstaðar.
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00