Fréttir
Sumarleyfi leikskólanna 2018
		
					20.03.2018			
										
	Í janúarmánuði samþykkti bæjarráð tillögu skóla- og frístundaráðs um að leikskólar Akraneskaupstaðar loki í fjórar vikur samfellt í samræmi við verklagsreglur leikskólanna en hvert barn skal taka fjórar vikur samfellt í sumarleyfi ár hvert og eru dvalar- og fæðisgjöld felld niður á þeim tíma.
Lesa meira
	Innritun í leikskóla fyrir haustið 2018
		
					19.03.2018			
										
	Innritun barna í leikskóla á Akranesi fyrir næstkomandi haust er nú lokið. Öll börn fædd 2016 og börn fædd janúar, febrúar, mars og apríl 2017 hafa fengið boð um leikskólapláss. Í íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is, geta forráðamenn nálgast tilkynningu þess efnis.
Lesa meira
	Viljayfirlýsing undirrituð um byggingu 33 íbúða á Akranesi
		
					14.03.2018			
										
	Í dag þann 14. mars undirrituðu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjarg íbúðafélags, Gylfi Arnbjörnsson stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ og Árni Stefán Jónsson, varaformaður stjórnar Bjargs og formaður SFR, viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða við Asparskóga á Akranesi. 
Lesa meira
	Írskir vetrardagar hefjast á morgun
		
					13.03.2018			
										
	Írskir vetrardagar verða haldnir 14.-18. mars og er það í þriðja sinn sem þeir eru haldnir. Á árinu 2015 ákvað Menningar- og safnanefnd kaupstaðarins að koma fram með þessa nýjung í menningarlífi Akraness. Markmiðið er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum menningu, bókmenntir og tónlist. Hátíðin hefst á kvöldstund með Elly og Margréti Blöndal í Stúkuhúsinu miðvikudagskvöldið kl. 20 og á sama tíma stíga nemendur FVA og tónlistarskólans á stokk í Bíóhöllinni með Slá í gegn.
Lesa meira
	Akraneskaupstaður fær styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
		
					12.03.2018			
										
	Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur ákveðið að styrkja verkefnið: Aðlaðandi bæir, umhverfisvæn endurnýjun og samkeppnishæfni í norrænum þéttbýlum. Bæir sem veita fólki góð lífsskilyrði.
Lesa meira
	Nýr göngustígur að Garðalundi
		
					12.03.2018			
										
	Nýlega var göngustígur kláraður meðfram Ketilsflöt að beygjunni í Garðalund. Verktaki var Þróttur og er stefnt fljótlega að fara í frágang á svæðinu sitthvoru megin við stíginn. Í framhaldinu verður lagður stígur alveg að Garðalundi sem og einnig að nýju frístundahúsi á golfvellinum. 
Lesa meira
	Bæjarstjórnarfundur 13. mars
		
					09.03.2018			
										
	1270. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 13. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.
Lesa meira
	Samtals 7,7 milljónum úthlutað til íþrótta- og menningarmála
		
					09.03.2018			
										
	Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2018 tillögur skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar um styrkveitingar til íþrótta- og menningarmála að andvirði 7,7 m.kr. Um er að ræða úthlutun styrkja úr sjóði atvinnu-, íþrótta- og menningarmála en auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember með umsóknarfrest til 17. desember síðastliðinn.
Lesa meira
	Lýsing á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Grenja
		
					07.03.2018			
															Skipulagsmál
							
	Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 27. febrúar 2018 að auglýsa lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Grenja H3 hafnarsvæði samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Fyrirhuguð er stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður deiliskipulag fyrir reitinn kynnt.
Lesa meira
	Umsækjendur um starf forstöðumanns íþróttamannvirkja
		
					02.03.2018			
										
	Akraneskaupstaður auglýsti starf forstöðumanns íþróttamannvirkja í byrjun febrúar. Umsóknarfrestur rann út þann 25. febrúar síðastliðinn og eru umsækjendur 17 talsins. Ráðningarferli stendur yfir.
Lesa meira
	
											Fréttir
					
					
					
				
													Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 
					 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 
  
 



