Fara í efni  

Akraneskaupstaður fær styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna

Ljósmynd; Jónas H. Ottósson.
Ljósmynd; Jónas H. Ottósson.

Nýsköpunarsjóður námsmanna hefur ákveðið að styrkja verkefnið: Aðlaðandi bæir, umhverfisvæn endurnýjun og samkeppnishæfni í norrænum þéttbýlum. Bæir sem veita fólki góð lífsskilyrði.

Styrkurinn er fyrir tvo nemendur samtals í fimm mánuði. Akraneskaupstaður og Umhverfisskipulagsbraut LbhÍ taka nú þátt í einstöku verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar til að vinna með og varpa ljósi á sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna og gæði meðalstórra bæja á Norðurlöndum. Markmið verkefnisins er að undirbúa sameiginlega norræna áætlun um hvernig bæir og nærliggjandi svæði þeirra geta orðið meira aðlaðandi með þróun á lifandi og heildrænu þéttbýlisumhverfi, sem umhverfisvænt og efnahagslega og félagslega sjálfbært.

Unnið verður með kortlagningu, þróun og notkun aðferða til að meta sjálfbærni í þéttbýli. Fulltrúar þeirra norrænu bæjar sem taka þátt í verkefninu munu deila þekkingu milli norrænna stjórnenda, stjórnsýslu og fræðasviða. Niðurstaðan á að vera sameiginleg norræn áætlun fyrir aðlaðandi og heildrænt þéttbýlisumhverfi. Með Akranesi í verkefninu eru Vaxjö í Svíþjóð, Middelfart í Danmörku og Salo í Finnlandi.  Sindri Birgisson skipulagsfræðingur og umhverfisstjóri hjá Akraneskaupstað og Helena Guttormsdóttir LbhÍ  leiða verkefnið.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00