Fara í efni  

Innritun í leikskóla fyrir haustið 2018

Bæjarstjórinn Sævar Þráinsson með kátum leikskólabörnum.
Bæjarstjórinn Sævar Þráinsson með kátum leikskólabörnum.

Innritun barna í leikskóla á Akranesi fyrir næstkomandi haust er nú lokið. Öll börn fædd 2016 og börn fædd janúar, febrúar, mars og apríl 2017 hafa fengið boð um leikskólapláss.

Í íbúagátt Akraneskaupstaðar, www.ibuagatt.akranes.is, geta forráðamenn nálgast tilkynningu þess efnis. Hægt er skrá sig inn í íbúagáttina með rafrænum skilríkum eða íslykli. Þegar innskráningu lýkur velja foreldrar/forráðamenn yfirflokk sem kallast málin mín, þar ætti innritunarmál barnsins að birtast efst. Sé ýtt á málsnúmer sem er í fyrsta dálk, er hægt að nálgast umrædda tilkynningu sem og einnig senda inn fyrirspurn, vakni upp einhverjar spurningar. Bréfin verða aðeins aðgengileg með þessum hætti en sé þess óskað að fá þau send á tölvupósti er hægt að senda beiðni um það á netfangið akranes@akranes.is  og muna skal eftir að tilgreina fullt nafn barnsins.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00