Fara í efni  

Fréttir

Bæjarstjórnarfundur 9. febrúar

1227. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. febrúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Lesa meira

Úthlutun úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs

Á fundi skóla- og frístundaráðs 2. febrúar 2016 var í annað sinn úthlutað styrkjum úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Þrjár umsóknir bárust um styrk og staðfesti skóla- og frístundaráð tillögu úthlutunarnefndar um að þróunarverkefnin...
Lesa meira

Ánægja með þjónustu við barnafjölskyldur

Árlega gerir Capacent Gallup viðhorfskönnun meðal íbúa um ýmsa þjónustuþætti sveitarfélagsins. Könnunin er lögð fyrir í 19 stærstu sveitarfélögum landsins og er úrtakið er um 8000 þúsund manns. Þau sveitarfélög sem taka þátt eru Akranes, Garðabær, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Akureyri, Reykjavík, Hveragerði...
Lesa meira

Aðstoð við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð

Þann 8. febrúar næstkomandi verða fulltrúar frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi með viðtalstíma þar sem veittar verða upplýsingar og aðstoð við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Verða þeir staðsettir á bæjarskrifstofunni á Akranesi milli kl. 14-16.
Lesa meira

Laust starf leikskólakennara í Teigaseli

Leikskólakennari óskast til starfa í Leikskólann Teigasel. Um er að ræða 87,5% stöðu sem er laus til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Lesa meira

Breytingar varðandi útsendingu greiðsluseðla

Ákveðið hefur verið að huga betur að umhverfisþáttum í starfsemi Akraneskaupstaðar, svo sem minnkun pappírsnotkunar samfara lækkun á kostnaði vegna pappírs og póstburðargjalda. Einn liður í því er að hætta útsendingu greiðsluseðla í bréfpósti fyrir leikskólagjöld, fæðisgjöld í grunnskólum, skóladagvist og...
Lesa meira

Utanríkisráðherra Færeyja heimsótti Akranes

Laugardaginn 30. janúar kom Poul Michelsen utanríkisráðherra Færeyja í heimsókn á Akranes. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs tóku á móti Michelsen ásamt Gísla Gíslasyni framkvæmdastjóra Faxaflóahafna og stjórnarmanni í Færeysk - íslenska verslunarfélaginu og Gunnari Sigurðssyni fyrrverandi forseta bæjarstjórnar
Lesa meira

Saga Klapparholts varðveitt

Fjölmennt var í Klapparholti þann 29. janúar síðastliðinn þegar nýtt skilti var vígt til heiðurs þeim hjónum, Guðmundi Guðjónssyni og Rafnhildi Árnadóttur, fyrir þeirra einstöku vinnu að skipulagningu og ræktun svæðisins í Klapparholti. Það voru þau Árni Steinar og Guðrún Halla barnabörn hjónanna sem klipptu á borðann....
Lesa meira

Auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa nú opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Á heimasíðu SSV kemur fram að sjóðurinn veitir verkefnastyrki á sviði menningar, stofn- og rekstrarstyrki menningarmála og styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Verkefnastyrkjum á sviði menningar ásamt...
Lesa meira

Deiliskipulag vegna fiskþurrkunar samþykkt til opinberrar kynningar

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 26. janúar, með fimm atkvæðum gegn fjórum, að auglýsa til kynningar tillögu að breyttu deiliskipulagi svokallaðs Breiðarsvæðis á Akranesi vegna áforma HB Granda um að reisa þar nýjar byggingar við núverandi fiskþurrkun
Lesa meira
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00