Fara í efni  

Úthlutun úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs

Frá vinstri: Kristinn Hallur Sveinsson, Ruth Jörgensdóttir Rautenberg, Ásta Egilsdóttir, Guðrún Guðb…
Frá vinstri: Kristinn Hallur Sveinsson, Ruth Jörgensdóttir Rautenberg, Ásta Egilsdóttir, Guðrún Guðbjarnadóttir og Sigríður Indriðadóttir.

Á fundi skóla- og frístundaráðs 2. febrúar 2016 var í annað sinn úthlutað styrkjum úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Þrjár umsóknir bárust um styrk og staðfesti skóla- og frístundaráð tillögu úthlutunarnefndar um að þróunarverkefnin „Að fanga fjölbreytileikann. Handbók um verkfæri Byrjendalæsis, Orðs af orði og Gagnvirks lestrar” og ,,Innleiðing á samvinnulíkani fyrir margbreytilega hópa” hljóti styrk að þessu sinni. Í úthlutunarnefnd eru Sigríður Indriðadóttir formaður skóla-og frístundaráðs,  Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Gunnar Gíslason ráðgjafi.

Rökstuðningur úthlutunarnefndar er eftirfarandi:

Að fanga fjölbreytileikann.  Handbók um verkfæri Byrjendalæsis, Orðs af orði og Gagnvirks lestrar.  Ábyrgðarmenn umsóknar:  Ásta Egilsdóttir kennari Grundaskóla og Guðrún Guðbjarnadóttir kennari Brekkubæjarskóla.  Umsögn úthlutunarnefndar:  Verkefnið tengist beint þjóðarátaki í læsi sem Akraneskaupstaður er aðili að. Þetta er samvinnuverkefni beggja grunnskólanna og styður við bæði skóla- og lestrarstefnu Akraneskaupstaðar og eflir skólasamfélag á Akranesi í heild sinni. Ábyrgðarmenn verkefnisins, Ásta og Guðrún, hafa unnið vel saman og faglega að innleiðingu og þróun byrjendalæsis í báðum skólum og aukið samvinnu skólanna með jákvæðum árangri.  Umsóknin er fagleg og vel rökstudd.  Verkefnið hljóti styrk að upphæð kr. 2.000.000.-

Innleiðing á samvinnulíkani fyrir margbreytilega hópa (Þorpið).  Ábyrgðamaður umsóknar:  Ruth Jörgensdóttir Rauterberg deildarstjóri dagstarfs í Þorpinu.  Umsögn úthlutunarnefndar:  Verkefnið er áhugavert frumkvöðlaverkefni sem hefur hlotið viðurkenningu fyrir nýsköpun og þróun í æskulýðsstarfi.   Ábyrgðamaður umsóknar, Ruth, hefur þróað samvinnulíkan fyrir margbreytilega hópa barna og unglinga til að skapa umhverfi sem einkennist af virðingu fyrir margbreytileika, félagslega viðurkenningu, þátttöku allra og samvinnu.  Þróunarverkefnið felst í innleiðingu hluta þess líkans í starfi með börnum og ungmennum í Þorpinu.  Umsóknin er fagleg og vel rökstudd.  Verkefnið hljóti styrk að upphæð kr. 1.500.000.-

Tilgangur með Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar er að styðja við þróunar- og nýsköpunarstarf á sviði skóla- og frístunda á vegum Akraneskaupstaðar með það að markmiði að starfsemin verði í sífelldri þróun í takt við breytingar í umhverfi og samfélagi.  Markmiðið er að verkefnin styðji við og stuðli að fagmennsku starfsfólks, auknum gæðum í skóla- og frístundastarfi, umbótum og nýbreytni.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00