Fara í efni  

Velferðarstefna Vesturlands

Velferðarstefna Vesturlands liggur nú til umsagnar hjá sveitarfélögum á Vesturlandi og hjá öðrum hagsmunaaðilum með umsagnarfresti til 15. febrúar næstkomandi. Bæjarráð Akraness fjallað um stefnuna á síðasta fundi sínum þann 9. janúar síðastliðinn og ákvað að efna til kynningarfundar á Akranesi mánudaginn 28. janúar næstkomandi kl. 18:00 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV kynnir drögin og honum innan handar verður Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi og formaður vinnuhóps stefnunnar. Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.

Stefnan er aðgengileg hér

Íbúar á Akranesi og aðrir hagsmunaaðilar geta skilað til Akraneskaupstaðar sínu áliti á stefnunni sem kaupstaðurinn getur haft til hliðsjónar við umsögn sína.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00