Fara í efni  

Skipulagslýsing vegna tjaldsvæðisins í Kalmansvík

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt skipulagslýsingu fyrir tjaldsvæði í Kalmansvík skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á skipulagi felur í sér að óbyggðu svæði í Kalmansvík verði breytt í opið svæði til sérstakra nota þar sem starfrækt verður ferðaþjónustutengd starfsemi s.s. tjaldsvæði og smáhýsi. Jafnframt verður unnið deiliskipulag fyrir svæðið þar sem nánari grein verður gerð fyrir einstökum þáttum. Um er að ræða breytingu á gildandi aðalskipulagi 2005 til 2017.

Skipulagslýsingin er til kynningar hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar og einnig er hægt að nálgast hana í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.

Ábendingar varðandi tillöguna eiga að vera skriflegar og berast fyrir 22. september 2016 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is

Hér er hægt að nálgast skipulagslýsinguna


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00