Fara í efni  

Rangfærslur leiðréttar: Uppfylling í Krókalóni frá árinu 2012 í samræmi við aðal- og deiliskipulag

Á almennum íbúafundi sem haldin var í Grundaskóla miðvikudaginn 2. maí síðastliðinn komu fram fullyrðingar af hálfu Guðmundar Páls Jónssonar fyrrverandi formanns bæjarráðs og bæjarstjóra, Sveins Kristinssonar fyrrverandi forseta bæjarstjórnar og Jóhanns Ársælssonar fyrrverandi bæjarfulltrúa um að landfylling sem nú þegar hefur verið gerð til að stækka athafnasvæði Skagans 3X hefði orðið 7000 fermetrar í stað 2000 fermetra. Framangreind fullyrðing er endurtekin í viðtali við Svein Kristinsson í Morgunblaðinu í dag.

Akraneskaupstaður hefur leitað til Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga sem var með skipulagsvinnu á landsvæði Grenja og borið undir þá ofangreindar fullyrðingar. Í svari Teiknistofu Arkitekta kemur fram það álit að landfylling sé innan skipulagsmarka samanber upplýsingar í meðfylgjandi yfirliti stofunnar. Jafnframt hefur stofan staðfest að framkvæmdin er í algeru samræmi við hönnun Siglingastofnunar, sbr. meðfylgjandi loftmyndir.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00