Fara í efni  

Lýsing fyrir gerð deiliskipulags í Skógarhverfi áfanga 3C og 5

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu fyrir gerð deiliskipulags Skógarhverfis áfanga 3C og áfanga 5, skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gert er ráð fyrir blandaðri byggð sérbýlis- og fjölbýlishúsa. Í skipulagsáföngunum verður unnið með blágrænar ofanvatnslausnir.

Hægt er að nálgast lýsinguna er á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.

Ábendingar og athugasemdir eiga að vera skriflegar og berast fyrir 20. maí 2021 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is

Deiliskipulag Skógarhverfis áfanga 3C og áfanga 5


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00