Skýrsla ungmennaráðs Akraness - Barnvænt Sveitarfélag
Ungmennaráð Akraness hefur frá upphafi tekið þátt í verkefninu Barnvænt sveitarfélag og fengu þau tækifæri til að miðla þeirra upplifun og mati á því hvernig verkefnið hefur gengið og haft áhrif á börn og ungmenni í bænum okkar. Þau ákváðu að gera það í formi skýrslu í skrifuðu máli og myndbandi. Hér fyrir neðan má lesa punktana þeirra úr skýrslunni og neðst má finna bráðskemmtilegt myndband sem þau unnu.
Ungmennaráð Akraness skipa þau Eydís Glóð Guðlaugs Drífudóttir, Arndís Elfa Pálsdóttir, Sandra Björk Freysdóttir, Sara Dís Óskarsdóttir, Sigurður Brynjarsson, Eva Júlíana Bjarnadóttir og Gunnar Heimir Ragnarsson.
- Við höfum tekið þátt í stýrihópi verkefnisins, komið að svörun spurningalista og verið virkir þátttakendur í skipulagningu og framkvæmd barna- og ungmennaþinga. Við höfum fundið að raddir barna skipta máli – en við vitum líka að það þarf að tryggja að hlustað sé á raddir okkar í alvöru, og að við fáum tíma og tækifæri til að hafa áhrif áður en ákvarðanir eru teknar. Okkur fannst aðgerðaáætlunin sem sett var fram vera góð og metnaðarfull.
- Við lögðum áherslu á að við værum hluti af framkvæmd ákveðinna aðgerða, eins og skipulagningu bæjarhátíða og barnaþinga.
- Við töldum líka mikilvægt að haft væri samband við okkur tímanlega og við fengjum raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á ákvörðunartöku. Það skiptir máli að við séum ekki bara táknræn við borðið – heldur að við fáum að hafa áhrif.
- Við fögnum því að í verkefninu var lögð áhersla á aukna fræðslu – bæði fyrir börn og ungmenni en líka fyrir foreldra. Við höfum lengi kallað eftir meiri og betri fræðslu um andlega heilsu, kynfræðslu og fíknivanda. Einnig viljum við að foreldrar fái stuðning og fræðslu, sérstaklega þegar kemur að því að setja börnum mörk og veita þeim leiðsögn. Við vildum líka leggja til að ungmenni sjálf gætu tekið þátt í að búa til fræðslu fyrir foreldra – því stundum skiptir það máli að heyra röddina okkar og reynslu beint.
- Við erum með mikinn metnað til að auka sýnileika ráðsins og höfum sett okkur það markmið að opna samfélagsmiðla, hvetja börn og ungmenni til að hafa samband við okkur og spyrja spurninga sem við getum komið áfram til bæjarins. Við viljum líka fá fleiri mál send til umsagnar – því þannig getum við haft áhrif á það sem er í gangi í sveitarfélaginu okkar.
- Við viljum að barnaþingið verði eflt og haldið tvisvar á ári. Það er dýrmætur vettvangur þar sem við fáum að tjá okkur og leggja fram hugmyndir. En við söknum þess að bæjarstjórn mæti og taki þátt í samtalinu – því þetta er frábært tækifæri til að eiga beint samtal við þá sem taka ákvarðanir. Við viljum líka halda fleiri bæjarstjórnarfundi unga fólksins – þar sem við fáum að stýra og setja mál á dagskrá.
- Við teljum að það þurfi að efla samskipti milli barna og þeirra sem stjórna í sveitarfélaginu. Það má t.d. gera með því að koma í skólana okkar, nýta samfélagsmiðla betur og spyrja börn reglulega hvað þau vilja og hvernig þeim líður.
Ungmennaráð er tilbúið til að halda áfram þessari vegferð. Við viljum að Akranes verði áfram Barnvænt sveitarfélag – ekki bara á blaði heldur í raunveruleikanum. Við viljum vera virkir þátttakendur og hluti af lausnunum.
Skýrslu ungmennaráðs Akraness var einnig skilað í formi myndbands sem þið getið séð hér fyrir neðan:
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember