Fara í efni  

Auglýsing vegna breytinga á aðal- og deiliskipulagi Höfðasels

Minniháttar breyting á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 til samræmis við nýtt deiliskipulags Höfðasel. Svæði I-314 er stækkað lítillega syðst upp að Höfðaselsholti. Auglýst samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1095). Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 22. september 2025 í gegnum skipulagsgátt.

 

Nýtt deiliskipulag Höfðasels byggir á eldra deiliskipulagi undir iðnaðarsvæði. Skilgreindar verða aðkomuleiðir að nýju athafnasvæði í Grjótkelduflóa austan skipulagssvæðisins frá Akrafjallsvegi. Nýjar lóðir eru skilgreindar sem iðnaðarlóðir ásamt lóðum undir helstu veitumannvirki. Skipulagið fellur undir eftirfarandi landnotkunarflokka svk. Aðalskipulagi Akraness I-314, I-315, I-316. Auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/122). Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 22. september 2025 í gegnum skipulagsgátt.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00