Vökudagar handan við hornið – ný heimasíða og tugir viðburða
Vökudagar, menningarhátíð Akurnesinga, fer fram dagana 22. október til 1. nóvember og ótal viðburðir verða í boði víðs vegar um bæinn. Nú hefur verið opnuð ný og glæsileg heimasíða hátíðarinnar þar sem gestir geta kynnt sér dagskrána og skipulagt sína eigin Vökudaga.
Á síðunni, www.vokudagar.is, geta gestir meðal annars skoðað viðburði dag frá degi, búið til sitt eigið viðburðadagatal og deilt því með vinum. Einnig er hægt að skoða viðburðina á gagnvirku korti og finna þannig leiðina á áfangastað.
Vilja auðvelda fólki að taka þátt
„Vökudagar eru stór og fjölbreytt ellefu daga menningarhátíð með tugum viðburða um allan bæ. Það kallaði á miðlægan og notendavænan vettvang þar sem gestir geta fundið alla dagskrána á einum stað. Markmiðið með nýju heimasíðunni er að auðvelda bæði gestum og viðburðahöldurum að nálgast upplýsingar og finna fljótt það sem þau leita að,“ segir Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, en það voru þeir Kristleifur Brandsson og Gísli Karlsson sem fengu það verkefni að búa síðuna til.
„Það skiptir okkur miklu máli að upplýsingaflæði og aðgengi sé sem best, enda viljum auðvelda fólki að taka þátt og njóta hátíðarinnar.“

Fjölbreytt dagskrá
Dagskrá Vökudaga er fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar verður meðal annars að finna tónlist, myndlist, smiðjur, vinnustofur, skapandi viðburði og fjölbreytta dagskrá fyrir börn og ungmenni.
Vökudagar eru jafnframt kærkomið tilefni til að staldra við og njóta þess sem menningarlífið á Akranesi hefur upp á að bjóða. Þegar fólk mætir á viðburði, tekur þátt og upplifir eitthvað nýtt verða til tengsl, samtöl og sameiginlegar minningar – og skammdegið verður aðeins bjartara.
Nú er því um að gera að kíkja inn á heimasíðu Vökudaga, skoða dagskrána og byrja að skipuleggja sína eigin hátíð.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





