Fara í efni  

Vinnuskólinn tekur fjölnotapoka í notkun

Krakkar úr vinnuskólanum að störfum með nýju fjölnotapokana.
Krakkar úr vinnuskólanum að störfum með nýju fjölnotapokana.

Í sumar er Vinnuskóli Akraness í tilraunastarfssemi og prófar sig áfram með heynet í stað svartra ruslapoka. Í sumar verður því blönduð notkun á þessum tveimur tegundum af pokum á meðan aflað er reynslu og gert viðeigandi ráðstafanir áður en skrefið er tekið til fulls. 

Heynet eru fjölnota pokar undir gras sem saumuð eru í Mosfellsbæ af fyrirtækinu Heynet. Pokarnir eru sterkir og endingagóðir en einnig er auðvelt er að gera við þá sem lengir endingatíma þeirra enn meira. Pokarnir eru í sniðinu líkt og pulsa og rúmar hver poki u.þ.b. 4 ruslapoka. Vinnuskólinn hefur áður reynt fyrir sér með aðrar lausnir í fjölnotapokum sem ekki hafa gengið að óskum. Pokarnir loftuðu þá ekki nægilega sem varð til þess að þeir fóru mjög fljótlega að lykta illa. Netin eru í eðli sínu með mikla loftun og er von um að það minnki líkur á því vandamáli. 

Vinnuskólinn hefur árlega verið að nota yfir 10 þúsund svarta ruslapoka og hafa þeir ýmist verið notaðir einu sinni eða oftar. Með þessari lausn nær vinnuskólinn u.þ.b. að helminga notkun svartra ruslapoka fyrst um sinn en í framtíðaráætlunum verða einungis fjölnotapokar í notkun. Þetta verkefni er einn liður í því að minnka kolefnisspor sveitarfélagsins og taka ábyrgð á eigin neyslu og er takmörkuð notkun á einnota umbúðum lítið skref í átt að bættri framtíð.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00