Fara í efni  

Vinnuskólinn sumarið 2024.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Akraness fyrir sumarið 2024.

Unglingar fæddir 2008, 2009 og 2010 geta sótt um starf í Vinnuskólanum, lengd vinnutíma og tímabil er mismunandi eftir árgöngum.

Einnig geta unglingar fæddir 2007 sótt um starf í Vinnuskólanum og ræðst lengd vinnutíma þeirra eftir fjölda umsækjenda.

Sótt er um í gegnum umsóknarvefinn Völu Vinnuskóla.

Vala vinnuskóli er nýtt rafrænt kerfi sem heldur utan um umsóknir, samskipti og vinnutíma.

Umsóknarfrestur er til 20. maí og verður vinnuskólinn settur 5. júní.

Nánari upplýsingar eru inni á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

Einnig er hægt að senda póst á Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóra og forstöðumann Vinnuskólans á netfangið jonsverris@akranes.is 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00