Fara í efni  

VINNSLAN FÓR OG HVAÐ SVO?

Frá opnun sýningar
Frá opnun sýningar

Undanfarnar vikur hafa nemendur í meistaranámi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands unnið að skipulagstillögum um framtíð svæðisins á Breið í áfanganum „Heildstætt og hagnýtt“. Markmið var að vinna tillögur að skipulagi sem eflir atvinnustarfsemi og býður upp á nýja nálgun fyrir lífsgæði á svæðinu sem gengið hefur í gegnum miklar breytingar á skömmum tíma. En einhæf atvinnustarfsemi veikir innviði margra samfélaga og mikilvægt bregðast við. Í tengslum við námskeiðið unnu nemendur einnig þrívíddarmódel af svæðinu og byggingunum. Kennarar voru þau Gunnar Ágústsson skipulagsfræðingur, Samaneh Nickayin landslagsarkitekt og lektor og Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfræðingur og dósent. Síðastliðinn föstudag kynntu svo nemendur tillögurnar fyrir prófdómurum, kennurum, Valdísi Fjölnisdóttur og Gísla Gíslasyni frá Breið þróunarfélagi. Sævari Frey bæjarstjóra, og fulltrúum frá umhverfis- og skipulagsráði Akraneskaupstaðar auk fleiri gesta í samræmi við takmarkanir. Viðburðinum var einnig streymt og hafa tæplega fjögur hundruð horft á streymið. Fjöldi gesta sem kom á opnum Fab-lab smiðju Vesturlands seinna um daginn, kynnti sér tillögurnar sem vöktu mikla athygli m.a. hjá Þórdísi Kolbrúnu atvinnuvega – og nýsköpunaráðherra.

Nú hefur verið ákveðið að skipulagstillögurnar verði til sýnis á þriðju hæð í samvinnurými Nýsköpunar -setursins. Allir eru hvattir til að koma og kynna sér hugmyndir nemenda sem m.a. sýna brim hótel og opnun í Steinavör. Sýningin er opin á virkum dögum frá kl.10.00 – 15.00.

 

 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00