Fara í efni  

Slökkviliðið auglýsir eftir nýliðum

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar auglýsir eftir nýliðum til starfa til að sinna útkallsverkefnum slökkviliðsins. Kynningarfundur verður haldinn á Slökkvistöð Akraness og Hvalfjarðarsveitar að Kalmansvöllum 2 annað kvöld (3. desember) kl. 20.

Lögboðin verkefni slökkviliðs:

  • Vatnsöflun og slökkvistarf utanhúss.
  • Slökkvistarf innanhúss og reykköfun.
  • Viðbrögð við mengurnar- og eiturefnaslysum, eiturefnaköfun.
  • Björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
  • Eldvarnareftirlit og forvarnir

Önnur verkefni slökkviliðs m.a:

  • Verðmætabjörgun.
  • Aðstoð vegna vatnstjóna.
  • Upphreinsistörf.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið iðnmenntun (sveinsprófi) eða sambærilegu (t.d. stúdentsprófi.
  • Æskilegt að hafa aukin ökuréttindi/meirapróf til að stjórna vörubifreið (C - flokkur)
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði og góð enskukunnátta æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
  • Hafa góða líkamsburði og gott andlegt / líkamlegt heilbrigði
  • Hafa góða sjón og heyrn, rétt litaskyn og vera ekki haldin lofthræðslu eða með innilokunarkennd
  • Almenn reglusemi, gott siðferði og háttvísi
  • Búseta á starfssvæði slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar er skillyrði

Allar nánari upplýsingar er að finna á Alfred.is þar sem einnig er hægt að sækja um starfið


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00