Fara í efni  

Viltu hafa áhrif á þróun Akraness?

Boðað er til kynningarfundar um vinnslutillögur að breytingum á deiliskipulagi á Akranesi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl. 17 að Dalbraut 4.

Á fundinum verður kynnt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar (svæði H-102 samkvæmt aðalskipulagi Akraness 2021–2033). Gert er ráð fyrir landfyllingu við aðalhafnargarð sem ætluð er fyrir hafsækna starfsemi, fiskiðnað og aðra athafnastarfsemi, auk breytinga sem ná til hluta sjóvarnargarðs.
 
Einnig verður kynnt tillaga að breytingum á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna annars vegar og deiliskipulagi Flóahverfis hins vegar, vegna fyrirhugaðs hringtorgs við gatnamót Akranesvegar og Akrafjallsvegar. Breytingarnar fela meðal annars í sér aðlögun stíga og uppfærð skipulagsmörk í samræmi við hönnun hringtorgsins.
 
Að lokinni kynningu gefst fundargestum kostur á að kynna sér tillögurnar nánar, spyrja spurninga og koma á framfæri ábendingum áður en málið fer til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.
 
Öll eru velkomin.
 
Hægt er að koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum í gengum Skipulagsgátt eða í þjónustuveri Akraneskaupstaðar Dalbraut 4.
 
Hlekki að málefnum kynningarfundarins innan Skipulagsgáttar má finna hér: 
 
 
 
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu