Fara í efni  

Vilt þú halda listasýningu í Bókasafni Akraness?

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir sýningarárið 2023.

Á bókasafninu er aðstaða til að setja upp sýningar á veggjum og/eða í sýningarkössum. Einnig eru til staðar flexisjöld og svo er bara að láta hugmyndaflugið ráða. 
Sýningar standa að jafnaði yfir í um fjórar vikur og eru þær opnar á afgreiðslutíma safnsins. Sýningaraðstaðan er lánuð endurgjaldslaust.
Við mat umsókna er farið eftir hvernig sýning hentar sýningaraðstöðu safnsins og fjölbreytileika sýninga. Öllum umsóknum verður svarað.

Sótt er um á vef Bókasafns Akraness. umsóknarfestur er til og með 25. janúar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu