Fara í efni  

Vetrardagar hefjast á morgun 14. mars

Mynd frá Vökudögum - 2022
Mynd frá Vökudögum - 2022

Menningarhátíðin Vetrardagar á Akranesi hefst á morgun 14.mars og stendur hátíðin yfir helgina fram til 17. mars. 

Vetrardagar í ár eru með svipuðu sniði og þeir hafa verið – Í boði verður hressandi blanda af sviðslist, tónlist, myndlist, sögu, hreyfingu og smiðjum/námskeiðum og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. En dagskránna má sjá hér fyrir neðan. Frekari upplýsingar um staka viðburði og uppfærða dagskrá má síðan finna í heild sinni á menningar og mannlífssíðu okkar Akurnesinga www.skagalif.is

Á Vetrardögum sem og Vökudögum leggjum við áherslu á umgjörð sem styður við menningarlíf kaupstaðarins og að íbúar hafi tök á að sækja fjölbreytta viðburði og smiðjur. Lagt er upp með að skapa vettvang fyrir hópa og einstaklinga sem vilja kynna bæjarbúum fyrir sínu listformi, hugarheimi og menningarverkefnum í bland við aðra heilsueflandi viðburði og samverustundir fjölskyldna. Eins og fram kemur í menningarstefnu Akraneskaupstaðar þá viljum við hlúa sérstaklega að menningaruppeldi og að starfsemi menningarstofnanna okkar sé metnaðarfullt.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00