Fara í efni  

Verkfræðiráðgjöf. Jaðarsbakkar, uppbygging Íþróttamannvirkja á Akranesi

Ríkiskaup, fyrir hönd Fasteignafélags Akraneskaupstaðar, kt. 630905-1330, eftir tilboði í alla verkfræðiráðgjöf vegna verkefnisins „Jaðarsbakki uppbygging íþróttamannvirkja – verkfræðiráðgjöf “. Hönnun er í samræmi við deiliskipulagsbreytingu dags.10.09.2020.

Um er að ræða steinsteypt íþróttahús með fría lofthæð yfir 7m. Kjallari er undir húsinu og þar eru búningsherbergi, aðstaða kennara, þjálfara, dómara o.fl. ásamt stoðrýmum og geymslum. Samtals er mannvirkið ríflega 5,300m² og leggst annarsvegar að norðurgafli Akraneshallarinnar og tengist sundlaugarbyggingu til vesturs hinsvegar. Húsið á að geta þjónustað alla almenna íþróttaiðkun s.s. handbolta, körfubolta, blak o.fl. með uppsettum áhorfendabekkjum ásamt því að vera leikfimihús fyrir Grundaskóla. Salurinn þarf að geta skipts í fjóra hluta í kennslu og einnig að geta tekið við uppsetningu fyrir veisluhöld, uppröðun borða í öllum salnum. Hljóðvist og loftgæði skulu taka mið af því besta sem gert er í dag. Bruna- og öryggismál skulu einnig taka mið af því.
Hönnunarstjórn er á hendi arkitekts hjá ASK.

Komin er á ráðgjafasamningur við Ask arkitekta sem sér um arkitektahluta á hönnun húss og lóðar.

Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf til að ljúka verkefninu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.

Nánari upplýsingar hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00