Fara í efni  

Verkefnið vitastígur fær 11,1 m.kr. í styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur veitt Akraneskaupstað styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða samtals 11,1 milljónir króna vegna verkefnisins „Vitastígur á Breið“. Styrkurinn er veittur til að ljúka við um 150 metra langan stíg frá bílastæði og aðkomutorgi að áningarstaðnum, yst á tanganum á Breið. Stígurinn er liður í heildarskipulagi fyrir nýjan öflugan ferðamannastað sem Breiðin er þegar orðin og er áhersla lögð á að það verði gott aðgengi fyrir alla að svæðinu. Í tillögu stjórnar að styrknum segir: „Breiðin hefur menningarsögulegt aðdráttarafl, auk nálægðar við sterk náttúruöfl hafs og öldu. Heildarhugmyndin er vel hugsuð og er umræddur áfangi nauðsynlegt skref í átt að því að gera Breiðina að góðum og fjölsóttum ferðamannastað.“

Vitarnir á Breið, Akranesviti og Gamli vitinn, eru meðal helstu kennileita Akraness og hefur tekist með uppbyggingu síðustu ára að skapa mikla sérstöðu á Íslandi í ferðaþjónustu með því að opna Akranesvita fyrir almenningi. Verið er að nýta góð og sterk sérkenni, söguleg gildi og náttúru sem leiðir af sér jákvæða afspurn til samfélagsins. Akranesviti er í dag opinn allt árið um kring og voru gestir sem heimsóttu svæðið á árinu 2017 rúmlega 14 þúsund talsins.

Hér má lesa fréttatilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins og finna nánari upplýsingar um aðrar úthlutanir. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00