Fara í efni  

Lokið - Vátryggingaútboð Akraneskaupstaðar 2019

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2019 – 2021.

Um er að ræða eftirfarandi tryggingar:

Lög- og samningsbundnar tryggingar:

  • Brunatrygging fasteigna.
  • Ábyrgðartrygging ökutækja.
  • Slysatrygging launþega.

Aðrar tryggingar:

  • Húseigendatryggingar
  • Lausafjártryggingar
  • Kaskótrygging ökutækja
  • Ábyrgðartrygging atvinnureksturs
  • Slysatryggingar barna til 18 ára aldurs í skóla- og tómstundastarfi
  • Slysatryggingar
  • Hópslysatryggingar
  • Sjúklingatryggingar
  • Líftryggingar slökkviliðsmanna

Útboðsgögn er hægt að sækja/fá með því að senda tölvupóst á gudmundurm@consello.is frá og með mánudeginum 8. apríl 2019 kl 9:00.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18 fyrir kl. 12:00, þriðjudaginn 14. maí 2019 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.

Heimilt er að skila tilboðum með tölvupósti á opnunarstað tilboða, ef þau berast áður en skilafrestur tilboða rennur út enda hafi öll gögn, sem fylgja eiga tilboði, verið póstlögð með ábyrgðarsendingu a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00