Fara í efni  

Úttekt á Kútter Sigurfara

Morten Møller sem starfar við forvörslu og viðgerðir á tréskipum við Nationalmuseet í Kaupmannahöfn kom á Akranes í dag til að gera úttekt á ástandi Kútters Sigurfara. Morten er staddur á Íslandi í þeim erindagjörðum  að aðstoða Norðursiglingar við að koma skipaflotanum þeirra í stand fyrir sumarið. Það var Þjóðminjasafnið sem hafði milligöngu um að fá Morten til verksins en Akraneskaupstaður er í góðu samstarfi við safnið um mótun tillagna varðandi framtíð kúttersins og er úttekt Mortens einn liður í því.  Morten hefur einnig komið að verkefnum tengdum Síldarminjasafninu á Siglufirði þannig að hann þekkir ágætlega til fornskipaflota Íslendinga. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00