Fara í efni  

Útivistartími barna og unglinga

Foreldrar og forráðamenn eru minntir á að skv. 92. grein barnaverndarlaga (nr. 80/2002) eru útivistartímar barna og unglinga sem hér segir:

Útivistartími yfir vetrartímann (2. september til 30. apríl) 

  • Börn 12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 20:00.
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 22:00.

Útivistartími yfir sumartímann (1. maí til 1. september)

  • Börn 12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 22:00.
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24:00.

Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag. Sem þýðir að 1. janúar þess árs sem börn verða 13 eða 16 ára lengist útivistartími.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00