Fara í efni  

Úthlutun úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2015

Sigríður Indriðadóttir ásamt fulltrúum Vallarsels.
Sigríður Indriðadóttir ásamt fulltrúum Vallarsels.

Sigríður Indriðadóttir ásamt fulltrúa Garðasels.Á fundi skóla- og frístundaráðs 10. júní sl. var úthlutað í fyrsta skiptið úr Þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Þrjár umsóknir bárust um styrk og staðfesti skóla- og frístundaráð tillögu úthlutunarnefndar um að Vallarsel fengi úthlutað kr. 3.100.000 til þróunarverkefnisins „Fjölmenningarlegt skólastarf í Vallarseli“ og Garðasel kr. 400.000 til þróunarverkefnisins „Lífið er leikur - að leika og læra“.

Við fjárhagsáætlunargerð á síðasta ári ákvað bæjarstjórn Akraness að leggja kr. 3.500.000 í nýjan Þróunarsjóð skóla- og frístundasviðs á árinu 2015. Tilgangurinn með þróunarsjóðnum er að styðja við þróunar- og nýsköpunarstarf á sviði skóla- og frístunda á vegum Akraneskaupstaðar með það að markmiði að starfsemin verði í sífelldri þróun í takt við breytingar í umhverfi og samfélagi.  Formaður skóla- og frístundaráðs, Sigríður Indriðadóttir afhenti styrkina með formlegum hætti í morgun.

Akraneskaupstaður óskar Vallar- og Garðaseli innilega til hamingju með styrkinn. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00