Fara í efni  

Útboð vegna endurnýjunar í 1. áfanga á Höfða

Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili, óskar eftir tilboðum í endurnýjun dvalarrýma og stoðrýma aðallega á 2. hæð.
Verkið felst í endurnýjun 20 dvalarrýma á 2. hæð og 5 dvalarrýma á 1. hæð, ásamt aðliggjandi gangrýmum og stoðrýmum. Gólfefni, loftaefni og innihurðir endurnýjað að mestu. Í dvalarrými eru baðherbergi algjörlega endurnýjuð, ásamt hreinlætislögnum, rafbúnaði. Sett er upp slökkviúðakerfi og í þakrými loftræsibúnaður ásamt stokkalögnum. Gólfflötur framkvæmdasvæða á 1. og 2. hæð er um 1.300 m2.

Verklok skulu vera eigi síðar en 30. maí 2023. Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá þriðjudeginum 2. nóvember 2021 í gegnum útboðsvef Mannvits: https://mannvit.ajoursystem.is/
Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 2. desember 2021. Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Framkvæmdanefnd Höfða

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00