Fara í efni  

Lokið - Útboð - Kalmanstorg / Esjubraut

Útboði er lokið.

Kalmanstorg – Esjubraut
Gatnagerð og veitur

Akraneskaupstaður og Veitur ohf. óska eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir við Kalmanstorg og í Esjubraut á Akranesi. Skila skal verkinu fyrir 30. nóvember 2018.

Um er að ræða endurgerð Kalmanstorgs ásamt gönguleiðum og stígum við torgið.  Í Esjubraut austan Kalmanstorgs skal lagfæra ójöfnur í yfirborði götunnar og malbika báðar akbrautir. Gera skal nýja göngu- og hjólastíg að norðanverðu með götunni. 

Fyrir Veitur ohf. skal endurnýja allar lagnir í Kalmanstorgi og lagnir með Esjubraut að norðanverðu.

Nokkrar stærðir:

  • Malbik á götur og stíga 5200 m²
  • Steyptar stéttar 800 m²
  • Fráveitulagnir 750 m
  • Kaldavatnslagnir 380 m

Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi 26. júní með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmer tengiliðs. Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð, fimmtudaginn 12. júlí 2018 kl. 11:05.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00