Fara í efni  

Uppbyggingarsjóður Vesturlands - kynning á sjóðnum

Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á Uppbyggingarsjóði Vesturlands á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl.  Viðvera verður á eftirtöldum stöðum:

  •  Stykkishólmur      mánudaginn 14. janúar kl.10.00-12.00 í ráðhúsinu í Stykkishólmi.
  •  Grundarfjörður     mánudaginn 14. janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Grundarfirði.
  •  Ólafsvík                 mánudaginn 14. janúar kl.16.00-18.00 í Átthagastofu í Ólafsvík
  •  Búðardalur            þriðjudaginn 15. janúar kl.13.00-15.00 í ráðhúsinu í Búðardal
  •  Akranesi                þriðjudaginn 15. janúar kl.10.00-13.00 í Landsbankahúsinu við Akratorg 2. hæð
  •  Hvalfjarðarsveit    þriðjudaginn 15. janúar kl.13.15-15.00 í ráðhúsinu á Hagamel
  •  Borgarnesi             miðvikudaginn 16. janúar kl.10.00-12.00 á skrifstofu SSV að Bjarnabraut 8

Að þessu sinni verða veittir styrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar í atvinnulífi, menningarmála og stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.

 Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands, en umsóknarfrestur rennur út 20. janúar n.k.

Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi http://ssv.is/ má nálgast ýmsar upplýsingar og þar er einnig að finna umsóknarformið http://ssv.is/uppbyggingarsjodur-vesturlands/.  Notaður er íslykill til innskráningar. 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00