Fara í efni  

Umhverfisverðlaun Akraness 2023

Verðlaunahafar ásamt Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra
Verðlaunahafar ásamt Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra

Afhending umhverfisverðlauna fór fram á setningu Vökudaga. Á meðfylgjandi myndum eru verðlaunahafar ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra og nefndarmönnum í skipulags- og umhverfisráði, þeim Guðmundi Ingþóri Guðjónssyni, Sædísi Alexíu Sigurmundsdóttur og Önnu Sólveigu Smáradóttur.

Eftirtalin verðlaun voru veitt:

Snyrtileg fyrirtækjalóð. Lækjarflói 1 Veitur. Gissur Ágústsson tekur á móti verðlaununum.

Endurgerð gamalla húsa. Skólabraut 33, Sunnuhvoll. Ólafur Páll Gunnarsson tekur á móti verðlaununum.

Falleg einbýlishúsalóð. Melteigur 4. Margrét Jónsdóttir og Sæmundur Benediktsson taka á móti verðlaununum.

Tré ársins. Skólabraut 20, garðahlynur. Lilja Líndal Aðalsteinsdóttir tekur á móti verðlaununum.

Samfélagsverðlaun. Holtsflöt 2. Rósmarý Andersen Úlfarsdóttir og Valdimar Arnþórsson taka á móti verðlaununum.

Við óskum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir þeirra hlutverk í að fegra bæinn okkar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00