Fara í efni  

Tinna Rós Þorsteinsdóttir bæjarlistamaður Akraness 2020

Sævar Freyr Þráinsson og Tinna Rós Þorsteinsdóttir.    Mynd: Myndsmiðjan
Sævar Freyr Þráinsson og Tinna Rós Þorsteinsdóttir. Mynd: Myndsmiðjan

Þann 17. júní síðast liðinn var val á Bæjarlistamanni Akraness 2020 kunngjört en það var að þessu sinni gert með óhefðbundnum hætti, í sérstakri hátíðarútsendingu á 17. júní á Fésbókarsíðu kaupstaðarins vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Það er Tinna Rós Þorsteinsdóttir, Tinna Royal, sem hlaut nafnbótina að þessu sinni.

Tinna er fædd árið 1982 og hefur lengst af verið búsett á Akranesi. Að loknu grunnskólanámi stundaði hún nám við Myndlistaskólann á Akureyri og útskrifaðist úr fornámi skólans árið 2013. Tinna er lífleg, framsækin og skapandi listakona sem vert er að gefa gaum. Tinna fæst við fjölbreytt viðfangsefni í list sinni. Hún er hugmyndarík listakona sem er í stöðugri þróun. Hún vinnur með skemmtileg viðfangsefni sem hún setur í nýtt samhengi. Þar má meðal annars nefna hvernig henni tekst að vekja áhuga á vöruhönnun og draga fram áhugaverðan og listrænan flöt á vörum sem hafa um árabil verið hluti af lífi okkar. 

Á undanförnum árum hefur Tinna auðgað menningarlíf á Akranesi og verið iðin við sýningahald á verkum sínum og jafnframt verið í samstarfi við aðra listamenn. Þá hefur hún oft á tíðum verið með opið á vinnustofu sinni þar sem allir eru velkomnir. Tinna er dugleg að deila efni af á samfélagsmiðlum þar sem fólki gefst kostur á að fylgjast með vinnu hennar frá því að hugmynd vaknar og þar til verk eru full kláruð.
Síðast en ekki síst hefur hún staðið fyrir myndlistarnámskeiðum fyrir börn og ungmenni sem er kærkomið í frístundaflóruna hér á Akranesi.

Þeir sem vilja kynna sér list Tinnu er bent á Fésbókarsíðu Tinnu RoyalTinnu Royal á Instagram og tinnaroyal á Snapchat.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00