Fara í efni  

Tilnefningar til bæjarlistamanns Akraness 2015

Erna Hafnes bæjarlistamaður Akraness árið 2014.
Erna Hafnes bæjarlistamaður Akraness árið 2014.

Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar ákvað á 11. fundi sínum 31. mars sl. að opna fyrir tilnefningar og er þar almenningi gefinn kostur á að taka þátt í að tilnefna næsta bæjarlistamann Akraness.

Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tilnefningar og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní nk. við hátíðlega athöfn. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann, en reglurnar má sjá hér. Tilnefningarfrestur er til og með 15. maí nk.

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00