Fara í efni  

Tillögur um skipulag Sementsreits

Fundargestir skoða tillögur arkitektastofa
Fundargestir skoða tillögur arkitektastofa

Tillögur að  skipulagi á Sementsreitum svokallaða voru kynntar í gær, þann 22 október, á opnum fundi í Tónbergi. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri setti fundinn og Rakel Óskarsdóttir formaður starfshóps um Sementsreit fór yfir vinnu hópsins og hvað framundan væri. Í starfshópnum voru einnig Dagný Jónsdóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir og með hópnum unnu Sigurður Páll Harðarson og Hildur Bjarnadóttir á skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar.

Þrjár arkitektastofur kynntu tillögur sínar en það voru Kanon, Ask og Landmótun. Í framhaldi af kynningum þeirra var boðið upp á léttan kvöldverð áður en fundargestum var boðin þátttaka í vinnuhópum þar sem farið var í gegnum spurningar varðandi tillögurnar. Myndir frá fundinum smá skoða hér. 

Hér fyrir neðan er hægt skoða tillögur sem fram komu á fundinum:

Kynning Kanon arkitekta   Kynning Ask arkitekta   Kynning Landmótunar 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00